1.mars´14
Kl. er 22.06 á laugardags kvöldi. Fyrri pistill er einskonar ferli á blogginu síðustu daga. Þetta byrjaði sem persónulegt ferli hjá mér. Þar sem ég skráði niður hugleiðingar mínar og eftir að hafa lesið yfir allt. Fannst mér þetta vera eitthvað sem væri skemmtilegt að share-a með fólki. Hugleiðing101 er hugsað sem pælingasíða. Stutt innlit á hvernig heilinn minn virkar og hver veit. Kannski munið þið fá einhvern innblástur eftir að hafa lesið ruglið í mér.
laugardagur, 1. mars 2014
The beginning of Bullshit
27.feb´14
Kl. er 23.05
á fimmtudags kvöldi. Meðan ég sit heima að skrifa eru samnemendur mínir á
söngvakeppni NFMH. Í rauninni þá var keppnin að klárast fyrir einhverju og ég
held og trúi að flestir séu farnir á Gaukinn til að fá sér einn fríann og
ferskan ef þeir yrðu svo heppnir. MH-ingurinn veit að ef hann dirfist að versla
sér einn ferskan Miða í þeirri von að þessi kaup nei ég endurtek þessi eyðsla á
fallegum 1000Krónum (og einni eyðsla á verðmætum tíma sem mun fara í að redda
skilríkjum sem úthlúta litlar líkur á því að einstaklingur komist inn á hinn
alræmda skemmtistað og eftir að hafa farið í gegnum allt ferlið þarf að koma
skilríkjunum heim til síns upprunalega eiganda aftur.) myndi úthluta honum einn
fríann bjór en nei, hann gleymir því að trilljón Mh-ingar safnast reglulega
saman til að halda uppá drykkju sína og hlutföllin á því að fá fríann bjór í
allri þessari MH-inga steypu eru u.þ.b., veistu ég er léleg í reikningi,
hlutföllin eru lítil, segjum svona 97% líkur. En sjái menn að hér var ég sest
fyrir framan þetta dýrlega lyklaborð mitt til að skrá mínar dýpstu
hugleiðingar. Hvað leinist í huga mínum, er það hinn alræmdi X eða hin
leiðinlega vinkona eða er ég hreinlega bara á túr og leitast í einhvern dýpri
skilning á málum mínum en að horfast í augu við tíma mánaðarins sem gerir mér
þann grikk að láta blæða úr leggöngum mínum (heimurinn er svo dýrlegur). Nei
veistu, þetta er ekki mín kæra dagbók. Þetta er alfaðir allra dagbóka. Nei,
þetta er besti vinur mannsins. Nei, þetta er og mun ávallt vera skjal sem
leynist í tölvu minni og mun hljóta nafnið Hugleiðing101. Hver menntskælingur
mun iðrast þess að fá ekki að lesa hið fullkomna orðarugl og bull sem ég hef
lagt hér á blað (en svo ákvað ég að deila þessum snilldarleika með áhuga
lesendum).
Hugleiðing101 mun innifela hverja hugmynd, þrá og hverja einustu
heimskulegustu uppástungu sem hægt mun vera að hugsa sér. Þetta mun vera krot
inní skjali sem er ætlað til að leiða lesanda inní minn eigin persónulega heim.
Þegar ég meina persónulegan er áætlun mín ekki að láta fólk lesa um
sambandsslit og Lína var algjör Tussa um daginn. Nei!, áætlunin
er sú að ég ætla skrifa það sem heillar mig og þegar ég segji að lesandinn fær
innsýn á persónulega heimi mínum, meina ég að þegar þú lest textann ertu að
lesa mig.
28.feb´14
kl. Er 09:59
á fallegum flöskudegi (Ég hef öruglega aldrei notað samhengið flöskudagur yfir
föstudag. Persónulega þá skil ég ekki nútíma hugtakið flöskudagur?). Ég gæti
verið rosa frumleg og lýst deginum, hvar ég er, hvað ég er að gera, hvað ég
ætla mér að gera en Nei. Ég hef verið að velta mér upp úr sama hlutnum í
einhvern tíma og finnst eins og það sé komið á mína eigin ábyrgð að svara
sjálfri mér þeirri spurningu. Hvað ætla ég mér í lífinu? Mér finnst ég vera
föst í sömu tilverunni dag eftir dag og
hreinlega komin með leið á lífsferli mínu síðustu daga. Ég er búin að mynda
ákveðin vítahring í kringum líf mitt og þetta er orðið að sama ferli aftur og
aftur. Ég er aðeins 17ára og ég hef það á tilfinningunni að ég á ekkert svo
mikið eftir og þegar ég set þetta upp í þessu samhengi er ég ekki að gefa í
skyn að ég held ég sé að fara deyja á morgun. Neibb, það sem ég meina er að mér
finnst ég ekki eiga mikið eftir með sjálfri mér. Allt lífið er að taka á rás og
áður en ég veit af verð ég föst við skrifborð, með barn á öxlinni og eiginmann
sem getur ekki gert neitt að því þegar hann horfir á yngri stelpur. Okei, þetta
er kannski heldur ekki það sem ég meina. Ég ætla mér ekki að verða að “The pathetic housewife”. Ég er alla vana mjög viss að ég verði eitthvað aðeins
meira profound. Þetta er mín persónulega skoðun ef þú ert eða telur það hið
fullkomna plan að verða húsmóðir. Gjörðu svo vel engin er að stoppa þig. Þú sem
einstaklingur ræður hvað þú villt gera við lífið þitt. Það er vegna þess að við
vorum ekki öll sköpuð eins. Fólk má
fylgja sínu eigin hjarta eða innsæi 100% eftir. I do not judge, nema þegar það
kemur að sjálfri mér. Ég vil ekki verða húsmóðir. (Gleymdi mér aðeins þarna.Fyndið hvernig hugurinn leiðir mann alltaf útí eitthvað annað). Þegar ég segji að lífið með
sjálfri mér sé að taka á enda. Meina ég að það eru ákveðnar hurðir sem eru að
lokast og ég get ekki annað en stoppað og hugsað hefði ég viljað komast þangað.
Ég get sammt ekki breytt fortíðinni. Ætli ég sé ekki bara á því stigi að ég
vill ekki verða stór. Ég hef alltaf verið sú manneskja sem bíð eftir næsta
afmæli og var alltaf að horfast í framtíðina. Mig langar að fara þangað og mig
langar að gera þetta og ég horfðist í augu við allt eins og það væri ekkert
mál. Hurðirnar voru 100% opnar en með aldrinum þá fór hugarfarið mitt að verða
þröngsýnna og allt í einu er ekki allt hægt eins og áður. Því það er alltaf
einhver hindrun sem samfélagið hefur sett upp. Ég ætla setja pásu á þessa
hugleiðingu. Var að lesa yfir þetta og fannst þetta allt vera eitthvað þungt og
mikið. Eftir að hafa verið að skrifa og hlusta á mína uppáhalds hljómsveit Slowblow og platan þeirra Fousque. Kommst ég að þeirri niðurstöðu
að tónlist myndar ákveðnar tilfinningar og hugleiðingar sem lýsast upp í manni.
Hver vissi að tónlist gæti verið svona áhrifamikið afl. Alors!(Franska-Jæja!) Ég er búin í
bili. Þetta er orðið aðeins of djúpt. Hver veit ætli ég breyti ekki um stefnu
næst og fari að tala um hvernig hvolpar myndi jákvætt hugarfarslegt eðli í
okkur (Í stuttu máli-Algjört bull/kjaftæði.)
1.mars´14
Kl. Er 20.30 og eftir að hafa eitt góðum og sólríkum laugardegi með
yndislegu fólki hef ég ekkert betra gera en að setjast núna og skrifa við
lyklaborð. Það að skrifa um daginn eða tilfinningalegt
ástand færir manni opin og hug og ákveðna hreinsun á hlutunum. Ég tel að skrifa úr hlutunum er eitt af bestu
leiðunum til að mynda jákvætt og yfirvegað hugarfar. Síðustu daga hef ég verið
að flækjast í spurningu. Hvað ég vill gera við líf mitt? Núna er ég komin á það
stig að ég er frekar að spá hvað ég vill gera núna við líf mitt. Ég hef verið
að fá margar hugmyndir sem ég veit að geti komið góðri tilbreytingu á líf mitt
en ég hef aldrei náð að framkvæma þær. Það er alltaf einhver hindrun sem
stoppar mig. En í rauninni er þetta bara ég að stoppa mig af. Við
setjum sjálf upp þessar hindranir. Fólk í nútíma lífi hefur misst sóldið
framkvæmdaleikann. Það er hvað ég kann t.d. að meta við Verzló. Skólinn kennir
þeim að framkvæma. Hvert einasta leikrit er gert svo vel að markmiðið þeirra er
að ná því 110%. Stundum trúi ég því ekki að allir þessir krakkar sem eru svo
duglegir í að halda sér við námið og hafa líka svo mikið félagslegt hlutverk í
leiðinni. Hvar í andskotanum fá þau alla þessa orku eru þau öll á kókaíni? Hvað
er þetta! En það sem ég er að reyna segja er að mér finnst samfélagið hafa
gleymt að kenna fólki að framkvæma. Ég þekki svo marga sem eru uppfylltir af
hugmyndum en hafa aldrei kjarkinn í að framkvæma þær. Svo eru það þeir sem
framkvæma án þess að hika og um leið og þeir eru komnir með gott ferli á
hlutunum vilja allir vera með. Stundum fær maður einhverja hugmynd og hættir
síðan við því þér finnst það ekki virka. En ef þú prófar það aldrei hvernig
veistu að það virkar ekki? Til þess að ná árangri í einhverju eða læra á
heiminn þarftu að þora að henda þér í hlutina án þess að hika. Þannig verða
meistaraverk til. Svo er það líka svo oft að ef þú færð hugmynd byrjarðu fyrst
á því að fá leyfi frá öðrum. “Hvað finnst þér um þetta?”. “Gæti þetta virkað?”. Fólk er alltaf að spá hvað öðrum finnst. Ef
þú ferð svoleiðis í gegnum lífið muntu aldrei ná neinu fram. Þú þarft að fylgja
þínu eftir og áður en þú veist af mun eitthvað frábært útur því koma. Ég setti mér
það áramóta heit að fylgja einni hugmynd
eftir. Ég ætla að framkvæma hana og þá kemmst ég að því hvort hún verði að
einhverju eða leiðir útí eitthvað nýtt og betra. Þetta er eitthvað sem allir
ættu að hugsa útí og vonandi fá flestir einhvern innblástur af þessari grein.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)